Kópavogstún 4 íbúð 403
Íbúðin verður sýnd miðvikudaginn 26. ágúst frá kl. 14,00 – 14,30
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 miðvikudaginn 2.september 2026
- Þriggja herbergja mjög falleg og rúmgóð íbúð á 4.hæð, merkt 01-04
- Bílastæði í bílakjallara merkt 01-B28.
- Eignin er skráð samkvæmt fasteignamati 126,5 fermetrar, sem skiptist í 119 fermetra íbúð og 7,5 fermetra geymslu.
- Fallegt eikarparket á alrými og herbergjum, dökkgráar steinflísar á baði og þvottahúsi, ljósar flísar á svölum. Gólfefni líta vel út.
- Opið eldhús, eikarinnrétting með dökkgrárri kantlímdri plastborðplötu, fallegar flísar á milli skápa.
- Innihurðir eru spónlagðar með eikarspæni, upprunalegar en líta út sem nýjar.
- Baðherbergi er með eikarinnréttingu, dökkgráar steinflísar á gólfi, hvítar flísar á veggjum, vegghengt salerni, sturtugler og hengi, gott skápapláss.
- Þvottahús er með dökkgráar steinflísar á gólfi, gluggi, gott skápapláss og mjög gott vinnupláss. Gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
- Svalir eru skráðar 16,2 fermetrar, snúa til suðurs með miklu útsýni, lokaðar með glerflekum sem opnast inn og er rennt til hliðar. Svalagólf með ljósum steinflísum.
- Rúmgóð geymsla, skráð 7,5 fermetrar, er í kjallara með lagerhillum.
- Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni.
- Mjög góð aðstaða er í húsinu, þar á meðal samkomusalur sem hægt er að fá afnot af.
Framreiknað verð er kr. 83.600.000-
- Miðast við byggingarvísitölu í júlí 2026, .
- Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
- Kópavogstún 4 er steinsteypt, sex hæða fjölbýlishús, með sambyggðum bílakjallara. Hleðslutengi hafa verið lögð í flest bílastæði. Þakplata er steinsteypt, klædd með pappa ofaná og einangruð. Birt flatarmál matshlutans er 3467,6 m2 og brúttórúmmál 14,839,1 m3. 28 íbúðir eru í Kópavogstúni 4. Sameiginlegur salur er á 1. hæð.
- Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.