Dalbraut 18 íbúð 304

Íbúðin verður sýnd mánudaginn 24. ágúst frá kl. 14:00 – 14:30

Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 mánudaginn 31. ágúst 2026

  • Tveggja herbergja íbúð á 3. hæð, merkt 0304 er til sölu. Íbúðin er 64,5 m² og með geymslu í kjallara sem ekki er skráð í fermetratölu eignar.
  • Veggir og loft, reiknað með endurmálun en íbúð lítur vel út og er vel um gengin
  • Gluggar eru að miklu leiti endurnýjaðir.
  • Gler er gott að sjá.
  • Gólfefni eru beikiparket á alrými, korkur á svefnherbergi og geymslu innan íbúðar, upprunalegur öryggisdúkur á baði, viðarflísar á svölum. Gólfefni líta vel út.
  • Ofnar virðast upprunalegur en kranar hafa verið endurnýjaðir; ekki vitað um lagnir.
  • Innihurðir eru upprunalegar, spónlagðar með beykispæni.
  • Eldhús er opið, hvít og viðarlit upprunaleg innrétting með límtrésborðplötum, ekki pláss fyrir uppþottavél. Borðplötur slitnar.
  • Hvít eldavél með kermík helluborði og bakarofni. Ísskápur fylgir.
  • Fataskápar upprunalegir, hvítir, í forstofu og herbergi.
  • Baðherbergi með upprunalegri hvítri innréttingu, upprunalegur dúkur á gólfi, vínildúkur á veggjum, sturtuhengi. Upprunalegur frágangur. Pláss fyrir þvottavél.
  • Þvottahús er sameiginlegt í kjallara.
  • Svölum er lokað með einingum úr áli með tvöföldu gleri og stórum opnanlegum flötum. Svalagólf með viðarflísum.
  • Góð geymsla í kjallara, geymsla í íbúð hefur verið opnuð og forstofa stækkuð.
  • Sameign inni:
    • Veggir og loft - Málað í góðu standi.
    • Gólfefni - Vinyldúkar á göngum en flísar á aðalanddyri
  • Sameign úti:
    • Útveggir - Steinsteypt, málað.B
    • Bílastæði - Fjöldi bílastæða á lóð hússins, ekki sérmerkt.

Framreiknað söluverð er kr 41.300.000,-


  • Miðast við byggingarvísitölu f. júlí 2026, 1032,3 stig.
  • Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
  • Húsgjald er kr _________,- á mánuði.
  • Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð með þvottavél og þurrkara.
  • Dalbraut 18 er fjögra hæða steinsteypt, einangrað að innan með 21 íbúð.
  • Tvær lyftur eru í húsinu.
  • Á jarðhæð hússins er þjónustumiðstöð sem rekin er af Reykjavíkurborg.
  • Húsvörður er í húsinu.
  • Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.