Sléttuvegur 31 íbúð 201

Íbúðin verður sýnd fimmtudaginn 17 september frá kl. 14:00 – 14:30

Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 fimmtudaginn 24 september 2026

Mjög falleg og vel um gengin þriggja herbergja íbúð á annarri hæð, merkt 01-0201 er til sölu. Eignin er skráð 123,7m², sem skiptist í íbúð skráð 116,3 m² og geymslu í kjallara skráð 7,4m² merkt 01-0008. Eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara merkt 01-B16.

  • Veggir og loft - reiknað með endurmálun.
  • Gluggar eru upprunalegir en virðast í góðu ástandi.
  • Gler virðist í góðu lagi.
  • Gólfefni – ljóst plankaparket á alrými og herbergjum, upprunalegur öryggisdúkur á baði, tréflísar á svölum, dúkur á þvottahúsi. Parket er sérvalið af eiganda og lítur vel út.
  • Ofnar eru upprunalegir, eins og aldur eignar gefur tilefni til.
  • Innihurðir eru upprunalegar eikarhurðir.
  • Hálf-opið eldhús, viðarlit upprunaleg innrétting með gráum kantlímdum borðplötum, flísar á milli skápa, gott vinnu- og skápapláss. Uppþvottavél fylgir.
  • Hvítur bakarofn, keramík helluborð. Hvítur breiður ísskápur.
  • Fataskápar, eikarspónn, í forstofu og svefnherbergi, líta vel út.
  • Baðherbergi er með upprunalegri eikar innréttingu, flísar á gólfi og í sturtu, flísar á veggjum, sturtugler og handklæðaofn. Mjög vel um gengið.
  • Þvottahús inn af eldhúsi, pláss fyrir þvottavél og þurrkara, hillur og ágætt rými.
  • Svalir eru mjög stórar og rúmgóðar til suðurvesturs, ágætt útsýni, lokað með glereiningum í álrennum. Svalagólf með viðarflísum.
  • Góð geymsla í kjallara, lagerhillur.
  • Bílastæði í vönduðum bílakjallara fylgir íbúðinni. Læstur geymsluskápur við stæðið. Lagnir til staðar til að tengja hleðslustöð.
  • Sameign inni:
    • Veggir og loft - Málað í góðu standi.
    • Gólfefni - Teppi á göngum en flísar á aðalanddyri, mjög gott ástand.
  • Sameign úti:
    • Útveggir - Steinsteypt, einangrað og klætt að utanverðu með lituðu áli.
    • Bílastæði - Fjöldi bílastæða á lóð hússins, ekki sérmerkt.

Framreiknað söluverð er kr 85.000.000,-

  • Miðast við byggingarvísitölu f. september 2026, 1035,9 stig.
  • Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
  • Húsgjald er kr 46.000,- á mánuði.
  • Húsið er tvískipt, hús nr. 29 er 4 hæðir og hús nr. 31 er 5-6 hæðir, á milli þeirra er einnar hæðar tengibygging. Kjallari er undir húsinu sem að hluta er bílakjallari. Húsið er steinsteypt, einangrað að utanverðu og klætt sléttum og báruðum álplötum. Þak er einhalla og klætt sléttum málmplötum. Þak tengibyggingar er flatt og klætt þakdúk. Í matshlutanum eru 58 íbúðir, geymslukjallari og bílakjallari fyrir 58 bíla
  • Margar lyftur eru í húsinu.
  • Gengið inn í íbúðir frá upphituðum svalagöngum.
  • Bílakjallari með 58 rúmgóðum stæðum er undir húsinu. Að auki er þvottastæði. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.