Sléttuvegur 19 íbúð 113

Íbúðin verður sýnd þriðjudaginn 16 júní frá kl. 13:30 – 14:00

Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 Þriðjudaginn 23 júní 2026

  • Þriggja herbergja íbúð á 1. hæð, merkt 01-13 er til sölu. Íbúðin er 88,4m² með geymslu í kjallara og bílastæði í bílakjallara.
  • Veggir og loft, reiknað með endurmálun en íbúð lítur vel út og er vel um gengin.
  • Gluggar eru upprunalegir en virðast í góðu ástandi.
  • Gler virðist í góðu lagi.
  • Gólfefni - eikarparket á alrými og herbergjum, upprunalegur öryggisdúkur á baði, flísar á svölum, dúkur á þvottahúsi. Parket er upprunalegt en lítur afar vel út.
  • Ofnar eru upprunalegir, eins og aldur eignar gefur tilefni til.
  • Innihurðir eru upprunalegar eikarhurðir.
  • Opið eldhús, viðarlit upprunaleg innrétting með kantlímdum borðplötum, gott vinnu- og skápapláss. Uppþvottavél fylgir.
  • Stállitaður bakarofn, keramík helluborð. Ísskápur fylgir.
  • Fataskápar, eikarspónn, í forstofu og svefnherbergi, líta vel út.
  • Baðherbergi er með upprunalegri eikar innréttingu, upprunalegur dúkur á gólfi, flísar á veggjum, sturtuklefi. Mjög vel um gengið.
  • Þvottahús og búr inn af eldhúsi, pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
  • Svölum eru mjög stórar og rúmgóðar, lokað með glereiningum í álrennum, þarfnast hreinsunar og viðhalds. Svalagólf flísalagt.
  • Góð geymsla í kjallara, hillur.
  • Bílastæði í mjög vönduðum bílakjallara fylgir íbúðinni. Lagnir og tengibúnaður til staðar fyrir hleðslustöð.
  • Sameign inni:
    • Veggir og loft - Málað í góðu standi.
    • Gólfefni - Teppi á göngum en flísar á aðalanddyri, mjög gott ástand.
  • Sameign úti:
    • Útveggir - Steinsteypt, einangrað og klætt að utanverðu með lituðu áli.
    • Bílastæði - Fjöldi bílastæða á lóð hússins, ekki sérmerkt.

Framreiknað söluverð er kr 56.500.000,-

  • Miðast við byggingarvísitölu f. maí. 2026, 1030,6 stig.
  • Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
  • Húsgjald er kr _________,- á mánuði.
  • Sameiginlegt þvottahús er í kjallara með þvottavél og þurrkara.
  • Sléttuvegur 19-21-23 er steinsteypt 3 og 6 hæða fjölbýlishús, einangrað að utanverðu og klætt með lituðu áli.
  • Margar lyftur eru í húsinu.
  • Gengið inn í íbúðir frá upphituðum svalagöngum. Húsvarðaríbúð og rúmgóður salur er í eigu hússins.

Upphitað bílskýli með 70 rúmgóðum stæðum er undir húsinu. Að auki er þvottastæði. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.