Dalbraut 18 íbúð 403

Íbúðin verður sýnd mánudaginn 5. október frá kl. 14,00 – 14,30

Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 mánudaginn12. október 2026

  • 2ja herbergja íbúð á 4. hæð, merkt 04-03 er til sölu. Íbúðin er 52,0 m².
  • Geymsla eru innan íbúðar og einnig er geymsla í kjallara ca. 6,0 m².
  • Eikarparket á stofu, eldhúsi, svefnherbergi, gangi en korkur geymslu.Farið að sjá á pareti.
  • Eldhúsinnrétting hvít innrétting með fulningahurðum, (IKEA) og harðplastborðplötur á borðum. Flísar á milli skápa.
  • Fataskápar eru með ljósum hurðum kantlímdum með beyki.
  • Tæki í eldhúsi.Eldavél ofn undir borði, helluborð með 4 hellum. Uppþvottavél. Gufugleypir.
  • Innihurðir eru spónlagðar með beyki spæni.
  • Baðherbergi er allt flísalagt, sturtuklefi með glerhurð og handklæðaofn. Handlaug er innbyggð í borðplötu. Tengi er fyrir þvottavél á baði.

Framreiknað verð er kr. 39.900.000,-


  • Miðast við byggingarvísutölu í september 2026, 1.036.7 stig.
  • Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
  • Sameiginlegt þvottahús með þvottavél og þurrkara er í kjallara.
  • Sameiginleg setustofa er á hæðinni.
  • Dalbraut 18-20 er fimm hæða hús með 47 íbúðum. Þjónustusel er í Dalbraut 18-20 sem Reykjavíkurborg á og rekur.Húsið var afhent til eigenda 1999.
  • Húsgjald er kr __________ ,- á mánuði.
  • Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.