Sléttuvegur 31 íbúð 406
Íbúðin verður sýnd miðvikudaginn 22 júní frá kl. 14,00 – 14,30
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 miðvikudaginn 29 júní 2022
- Rúmgóð 2ja herbergja íbúð á 4. hæð, merkt 04-06, er til sölu. Íbúðin er 85,7 m².
- Geymsla 6,8 m² með hillum er í kjallara. Stærð 6,8 m².
- Parket úr eik er á stofu, herbergjum, eldhúsi og gangi. Öryggisdúkur á baði og þvottahúsi.
- Innihurðir, eldhúsinnrétting og skápar eru spónlagðir með eikarpæni.
- Keramik helluborð og bakaraofn. Háfur er yfir helluborði.
- Uppþvottavél og ísskápur með frysti og klakavél fylgir með.
- Baðherbergisveggir eru flísalagðir í hæðina 210 cm. Innrétting er með innbyggðri handlaug. Sturtuklefi er úr áli og hertu gleri. Þvottahús er inn af eldhúsi.
- Svölum er lokað með hertu gleri. Svalagólf er flísalagt.
- Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með lituðu áli.
Framreiknað verð er kr 48.700.000,-
- Miðað er við byggingarvísitölu fyrir maí. 2022, 840,0 stig.
- Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
- Sléttuvegur 31 er 6 hæða hús tengt við Sléttuveg 29 með sameiginlegum sal.
- Í húsinu eru samtals 58 íbúðir. Íbúð húsvarðar er eign húsfélagsins.
- Undir húsinu er bílageymsla. Eitt stæði fylgir íbúðinni.
- Húsið var afhent til eigenda 2011.
- Húsvörður er í húsinu.
- Húsgjald er kr 27,589,- á mánuði.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.