Sléttuvegur 29 íbúð 209

Íbúðin verður sýnd miðvikudaginn 1. apríl frá kl. 13,30 – 14,00

Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 fimmtudaginn 9. apríl 2026


  • Rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð, merkt 02-09, er til sölu. Íbúðin er 93,3 m² ásamt 7,3 m² geymslu í kjallara.
  • Íbúðin var afhent ný til eigenda 2011.
  • Parket úr eik er á stofu, herbergjum, eldhúsi og gangi. Öryggisdúkur á baði og þvottahúsi.
  • Innihurðir, eldhúsinnrétting og skápar eru spónlagðir með eikarpæni.
  • Spanhelluborð og bakaraofn. Háfur er yfir helluborði.
  • Borðplötur í eldhúsi eru úr graní innbyggðu spanhelluborði og vask.
  • Uppþvottavél og ísskápur með frysti og klakavél fylgir með. Öll tæki eru lítið notuð.
  • Baðherbergisveggir eru flísalagðir í hæðina 210 cm.
  • Sturtuklefi er úr áli og hertu gleri. Þvottahús er inn af eldhúsi.
  • Svölum er lokað með hertu gleri. Svalagólf er flísalagt.
  • Rafmagnsrúllugardínur eru fyrir gluggum í stofu og herbergjum.
  • Loftlampar fylgja með í stofu og svefnherbergi.
  • Stæði í bílgeymslu fylgir íbúðinni.


Framreiknað verð er kr 66.500.000.-

  • Miðað er við byggingarvísitölu fyrir mars 2026, 1029,6 stig.
  • Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
  • Sléttuvegur 29 er 4 hæðir, tengt við Sléttuveg 31 með sameiginlegum sal.
  • Salurinn eru um 100 m² með snyrtingum og eldhúsi.
  • Í húsinu eru samtals 58 íbúðir. Íbúð húsvarðar er eign húsfélagsins.
  • Undir húsinu er upphituð bílageymsla með sameiginlegu þvottastæði og dekkjageymslu.
  • Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með lituðu áli.
  • Bílastæði og göngustígar eru með snjóbræðslu.
  • Lóðin sunnan við hús er hellulögð með grasi og trjágróði. Mjög snyrtileg lóð.
  • Húsið var afhent til eigenda 2011.
  • Húsvörður er í húsinu.
  • Húsgjald er kr. _________,- á mánuði.


Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.