Sléttuvegur 19 íbúð 114
Íbúðin verður sýnd miðvikudaginn 18, júní frá kl. 14,00 – 14,30
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 miðvikudaginn 25, júní 2025
- 3ja herbergja íbúð á 1. hæð, merkt 01-14, er til sölu. Íbúðin er 88,4 m² samkvæmt fasteignaskrá Íslands. Sér geymsla með hillum er í kjallara, 6,7 m².Parket úr eik er á stofu, herbergjum, eldhúsi og gangi. Öryggisdúkur á baði og þvottahúsi.
- Innihurðir, eldhúsinnrétting og skápar eru spónlagðir með viðarspæni.
- Keramik helluborð og útsogsvifta er yfir helluborði. Uppþvottavél, ískápur kælir/frystir fylgja með.
- Baðherbergisveggir eru flísalagðir í hæðina 210 cm. Innrétting er með innbyggðri handlaug. Sturtuklefi er úr áli og hertu gleri.Þvottahús er inn af eldhúsi.
- Svölum er lokað með hertu gleri. Svalagólf er flísalagt. Íbúðin er í góðu standi.
Framreiknað verð er kr 54.900.000-
- Miðað er við byggingarvísitölu fyrir maí 2025, 1004,1 stig.
- Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
- Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með lituðu áli.
- Sameiginlegt þvottahús er í kjallara með þvottavél og þurrkara.
- Sléttuvegur 19 og 21 er 3ja hæða hús tengt við Sléttuveg 23 með sameiginlegum sal. Í húsinu eru samtals 70 íbúðir. Undir húsinu er bílageymsla. Eitt stæði fylgir íbúðinni.
- Húsið var afhent til eigenda 2007.
- Húsvörður er í húsinu.
- Húsgjald er kr. _________,- á mánuði.
- Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.