Sléttuvegur 13 íbúð 401

  • Íbúðin verður sýnd mánudaginn 16, febrúar frá kl. 13,15 - 14,00

  • Tilbðum skal skilað fyrir kl. 12,00 mánudaginn 23, febrúar 2026



  • Mjög rúmgóð og vel skipulögð þriggja til fjögra herbergja endaíbúð á 4. hæð, merkt 04-01. Samtals skráð flatarmál eignarinnar er 140,6 fermetrar, sem skiptist í 116,8 fermetra íbúðog 23,8 fermetra bílskúr sem er í innri enda bílskúralengju hússins. Geymsla er innan íbúðar.
  • Íbúðin er mjög vel hönnuð, með björtum og rúmgóðum stofum með miklu útsýni, stórt eldhús sem auðvelt er að opna til stofu, rúmgóðu baðherbergi með góðu plássi fyrir baðkar, sturtu og þvottavél/þurrkara, tvö rúmgóð herbergi, gott forstofurými og geymslu innaf forstofu.

Ástand íbúðar:

Veggir og loft

Mikil ummerki eftir leka og raka. Þörf á niðurrifi útveggja, hreinsun og mygluprófunum, enduruppbyggingu að því loknu.

Málning

Íbúðin hefur nýlega verið blettamáluð.

Gluggar

Flestir gluggar ónýtir, þarfnast endurnýjunar.

Gler

Gler ónýtt að miklu leiti, móða í mörgum gluggum og eldhúsgluggi brotinn.

Gólfefni

Öll gólfefni eru ónýt. Hreinsa þarf gólfefni af og kanna myglu.

Innihurðir

Upprunalegar.

Eldhúsinnrétting

Upprunaleg innrétting, mjög ljót vegna slæmrar umhyrðu.

Eldavél

Mögulega nothæf.

Fataskápar

Upprunalegir, slæmt ástand vegna lélegrar umhyrðu.

Baðherbergi

Mjög slitinn gólfdúkur, flísar á veggjum margar lausar, innrétting. Niðurfall í sturtu ónýtt, sturta ónothæf.

Þvottahús

Pláss fyrir þvottavél og þurrkara á baði.

Svalir

Lokaðar svalir með einf. gleri í álprófílum.
Mikil ummerki um leka, flísar lélegar að hluta, gler ónýtt, álprófílar þarfnar viðhalds.

Geymsla í íbúð

Hillur, dúkur á gólfi.




Ásett verð eignar að teknu tilliti til ástands hennar er kr 45.000.000,-


Fasteigamat eignarinnar 2026 er krónur 68.850.000,-
Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
Húsgjald er kr _________,- á mánuði.
Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð með þvottavél og þurrkara.
Sléttuvegur 11-13 er 5 hæða hús með 52 íbúðum. Húsið var afhent til eigenda 1991.
Tvær lyftur eru í húsinu.
Fyrir liggur að húsfélagið hefur ákveðið að fara í miklar viðgerðir á húsinu að utan. Kaupandi íbúðarinnar tekur á sig allar greiðslur vegna þessa fyrirliggjandi viðhaldsverkefnis, bæði gjaldfallnar og ógjaldfallnar. Nauðsynlegt er að kaupandi kynni sér vandlega gögn frá fasteignasala um verkefni, svo sem kostnaðaráætlanir og greiðsluáætlun frá húsfélagi og Eignaumsjón. Fyrirliggjandi kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir að kostnaður sem nemur 4,7 milljónum falli á þessa íbúð.
Kaupandi tekur sömuleiðis á sig greiðslu vegna tjóns sem varð á íbúð fyrir neðan þessa, vegna viðvarandi leka frá baðherbergi þessarar íbúðar. Krafa uppá um 200.000 krónur frá eiganda þeirrar íbúðar er meðal sölugagna eignarinnar.
Kaupendum er bent á að kynna sér vandlega söluyfirlit fasteignasala ásamt öðrum gögnum sem fasteignasali leggur til frá húsfélagi og Eignaumsjón. Sömuleiðis er bent á lögbundna skoðunarskyldu kaupenda fasteigna, og kaupendur hvattir til að nýta sér aðstoð fagmanna við skoðun eignarinnar. Seljendur hafa aldrei búið í eigninni og þekkja ekki til ástands hennar nema að takmörkuðu leiti. Eignin er þess vegna seld í því ástandi sem hún er og hvorki seljendur eða Samtök aldraðra taka nokkra ábyrgð á ástandi eignarinnar.



Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.