Dalbraut 14 íbúð 106

Íbúðin verður sýnd fimmtudaginn 5. mars frá kl. 13:30 – 14:00

Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 fimmtudaginn 12. mars 2026

  • Mjög rúmgóð og björt 105,8 m² þriggja herbergja íbúð á 1. hæð,
  • merkt 0106, ásamt bílastæði merktu 01B14 í bílakjallara, er til sölu.
  • Sérgeymsla, 7,3 fermetrar í kjallara, er innan fermetratölu eignarinnar; íbúðin sjálf er 98,5 fermetrar. Eignin er sérlega vel skipulögð, björt og rúmgoð með stórri stofu, hálfopnu eldhúsi með stórri viðarlitri innréttingu, rúmgóðum herbergjum, stóru baðherbergi og geymslu innan íbúðar sem einnig nýtist sem þvottahús. Úr stofu er gengið út á stórar svalir til vesturs með vandaðri svalalokun. Í rúmgóðum bílakjallara er einkastæði sem fylgir íbúðinni. Vönduð og skemmtileg íbúð í mjög góðu húsi.
  • Veggir og loft
  • Reiknað með endurmálun.
  • Gluggar
  • Í lagi að sjá, sumsstaðar kominn tími á gluggamálun.
  • Gler
  • Virðist vera í lagi.
  • Gólfefni
  • Eikarparket á öllum megingólfum, upprunalegt. Öryggisdúkur á baðgólfi og geymslu, lítur ekki vel út.
  • Innihurðir
  • Spónlagðar með eikarspæni.
  • Eldhúsinnrétting
  • Eikarilituð innrétting með gráyrjóttri steinplötu, skápar til lofts og gott vinnupláss. Flísar á milli skápa.
  • Eldavél
  • Hvítur bakarofn, vifta og uppþvottavél, grár ísskápur.
  • Fataskápar
  • Spónlagðir, eik, í forstofu og báðum herbergjum.
  • Baðherbergi
  • Stór eikarlituð innrétting, vaskur innfelldur í hvíta plötu með viðarkannti, flísar á veggjum, handklæðaofn, vegghengt salerni, vandaður sturtuklefi í horni.
  • Þvottahús
  • Rúmgóð innrétting í geymslu innan íbúðar, vaskur, pláss fyrir þvottavél og þurrka
  • Svalir
  • Svölum er lokað með vönduðum einingum úr áli og opnanlegum glerflekum. Farið að sjá á gleri og samskeitum, þarfnast eðlilegs viðhalds. Flísar á gólfi.
  • Geymsla í kjallara
  • Geymsla, 7,3 fermetrar, merkt 01-0024 í kjallara.
  • Bílastæði íbúðar í bílakjallara
  • Bílastæði merkt 01-B14 í bílakjallara fylgir íbúðinni, vandaður bílakjallari
  • Sameign inni
  • Veggir og loft - Málað í góðu standi.
  • Gólfefni
  • Teppi á göngum en flísar á aðalanddyri
  • Sameign úti:
  • Útveggir Steinsteypt, álklætt.
  • Bílastæði úti - Nokkur bílastæði á lóð.

Framreiknað söluverð er kr. 64.000.000,-

  • Miðast við byggingarvísitölu f. mars. 2026, 1024,7 stig.
  • Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
  • Húsgjald er kr _________,- á mánuði.
  • Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð með þvottavél og þurrkara.
  • Dalbraut 14 er fjórar hæðir auk kjallara, með 27 íbúðum. Húsið var afhent til eigenda 2003.
  • Lyfta er í húsinu.
  • Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.