Íbúðin verður sýnd miðvikudaginn 18. mars frá kl. 11:30 – 12:00
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12,00 miðvikudaginn 25. mars 2026
- Mjög rúmgóð og björt 106,7 m² þriggja herbergja íbúð á 1. hæð,
- merkt 01-0101, ásamt bílastæði merktu 01B09 í bílakjallara, er til sölu.
- Sérgeymsla, 8,2 fermetrar í kjallara, er innan fermetratölu eignarinnar; íbúðin sjálf er 98,5 fermetrar. Eignin er sérlega vel skipulögð, björt og rúmgoð með stórri stofu, hálfopnu eldhúsi með stórri viðarlitri innréttingu, rúmgóðum herbergjum, stóru baðherbergi og geymslu innan íbúðar sem einnig nýtist sem þvottahús. Úr stofu er gengið út á stórar svalir til suðvesturs með vandaðri svalalokun. Í rúmgóðum bílakjallara er einkastæði sem fylgir íbúðinni. Vönduð og skemmtileg íbúð í mjög góðu húsi.
- Veggir og loft
- Reiknað með endurmálun en lítur vel út.
- Gluggar
- Líta vel út.
- Gler
- Virðist vera í lagi.
- Gólfefni
- Ljóst beikiparket á öllum megingólfum, upprunalegt. Öryggisdúkur á baðgólfi og geymslu, líturvel út.
- Innihurðir
- Spónlagðar með beikispæni.
- Eldhúsinnrétting
- Beikilituð innrétting með hvítri kantlímdri borðplötu, skápar til lofts og gott vinnupláss. Flísar á milli skápa.
- Eldavél
- Hvítur bakarofn, vifta og uppþvottavél, hvítur ísskápur.
- Fataskápar
- Spónlagðir, beiki, í forstofu og báðum herbergjum.
- Baðherbergi
- Stór beikilituð innrétting, vaskur innfelldur í hvíta plötu með viðarkannti, flísar á veggjum, handklæðaofn, vegghengt salerni, vandaður sturtuklefi í horni.
- Þvottahús
- Rúmgóð innrétting í geymslu innan íbúðar, vaskur, þvottavél og þurrkari.
- Svalir
- Svölum er lokað með vönduðum einingum úr áli og opnanlegum glerflekum. Farið að sjá á gleri og samskeitum, þarfnast eðlilegs viðhalds, en litur mjög vel út. Flísar á gólfi.
- Geymsla í kjallara
- Geymsla, 8,2 fermetrar, merkt 01-0001 í kjallara.
- Bílastæði íbúðar í bílakjallara
- Bílastæði merkt 01-B09 í bílakjallara fylgir íbúðinni, vandaður bílakjallari
- Sameign inni
- Veggir og loft - Málað í góðu standi.
- Gólfefni
- Teppi á göngum en flísar á aðalanddyri
- Sameign úti:
- Útveggir Steinsteypt, álklætt.
- Bílastæði úti - Nokkur bílastæði á lóð.
Framreiknað söluverð er kr. 65.800.000,-
- Miðast við byggingarvísitölu f. mars. 2026, 1024,7 stig.
- Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra.
- Húsgjald er kr _________,- á mánuði.
- Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð með þvottavél og þurrkara.
- Dalbraut 14 er fjórar hæðir auk kjallara, með 27 íbúðum. Húsið var afhent til eigenda 2003.
- Lyfta er í húsinu.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu samtakanna. Sími 552-6410.